SamtÖk frumkvÖÐLA OG HUGVITSMANNA
Velkomin á heimasÍÐu SAMTAKA FRUMKVÖÐLA OG HUGVITSMANNA: SFH
SFH vinnur að framgangi frumkvöðlastarfs og hugvits á Íslandi
SFH er tengslanet þeirra, sem vinna að þróun og nýtingu nýrra hugmynda og aðferða.
SFH er vettvangur áhugafólks um nýsköpun
SFH vinnur að auknum réttindum almennra frumkvöðla og jafnræði þeirra í stuðningskerfinu.
SFH leitast við að skapa farvegi til að nytsamar hugmyndir komist á framfæri.
SFH stuðlar að aukinni fræðslu og hvatningu til nýtingar hugvits á öllum sviðum.
SFH stuðlar að varðveislu menningararfs þjóðarinnar á sviði hugvits og frumkvöðlastarfs.
Hefur þú hugmynd? Hefur þú áhuga? Þá er SFH félagsskapur fyrir þig. Hafðu strax samband
Þú getur skráð þig á póstlista SFH hér
Þú getur horft á þáttinn Frumkvöðlar á ÍNN hér
FRÉTTIR: |
Internationella Innovationsmässan i Stockholm - Alþjóðleg uppfinningasýning Sænska hugvitsmannafélagið; „Svenska Uppfinnareföreningen“, býður íslenskum hugvitsmönnum að taka þátt í hátíðarsýningu í Stokkhólmi 4.-7. Oktober nk; eða eins og segir í skeyti þeirra; „SUF bjuder in uppfinnare och innovatörer att ställa ut på Internationella Innovationsmässan i Stockholm. Mässan har temat "Inventions for the Future" och äger rum 4-7 oktober 2011.“ Verðið á básnum er 10.000 sænskar krónur + skattur og geta nokkrir verið saman um bás. Ef áhugi reynist fyrir hendi hjá nokkrum félagsmönnum er SFH tilbúið að greiða verulega niður básleiguna. Látið vita strax ef þið hafið áhuga. Svíarnir segjast enn taka við pöntunum, þó skráningu hafi átt að ljúka í maí. Nánari upplýsingar um sýninguna eru á: http://www.uppfinnare.se/stall_ut_pa_innovationsmassan |
Unnið að bættu lagaumhverfi. |
SFH fær framlag á fjárlögumÞau tímamót hafa nú orðið í starfsemi SFH að þau hljóta nú í fyrsta skipti framlag á fjárlögum Alþingis; eina milljón króna. Þetta er að vísu ekki há fjárhæð og fékkst enganveginn fyrirhafanarlaust. Allt frá því að hugvitsmenn stofnuðu sitt fyrsta félag hafa sjóðir verið meira og minna tómir. Þrátt fyrir að einstaka sinnum hafi önglast inn einhverjir styrkir hefur ráðstöfunarfé verið afskaplega takmarkað. Ekki einungis hefur allt starf verið í sjálfboðavinnu stjórnarmanna heldur hafa þeir einnig þurft að greiða útlagðan kostnað úr eigin vasa. meira... |
![]() Líkan af nýsköpunartogara |
Hægt er að hlusta á fyrirlestur Kaj Mickos í heild hér ( .mp3 skrár): Part 1, Part 2



